Kjartan Magnússon vann ötullega að ýmsum góðum málum í þágu hverfanna í borgarstjórn. Hér eru nokkur þeirra nefnd. Nú gefst kostur á að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Kjartans.
- Aðgerðir í þágu umferðar- öryggis í hverfunum, sérstaklega við skóla og íþróttamannvirki.
- Tillögur um að tryggja örugga för skólabarna og annarra óvarinna vegfarenda yfir Miklubraut.
- Tillögur um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í því skyni að auka umferðaröryggi, draga úr mengun og greiða fyrir umferð.
- Skólamál: Margvíslegar tillögur og aðgerðir til eflingar menntun og skólastarfi.
- Úrbætur í þágu íþrótta- og æskulýðsstarfs Vals að Hlíðarenda.
- Spennistöðin. Geymslu- húsnæði OR við Austur- bæjarskóla breytt í félags- og menningarmiðstöð í þágu skólans og íbúa hverfisins.
- Bætt aðstaða til hjólabrettaiðkunar og leikja á Klambratúni.
- Viðhald og endurbætur á húsnæði leikskóla og grunnskóla í hverfunum.
- Úrbætur á húsnæði og skólalóðum, t.d. við Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla.
- Andstaða gegn hugmyndum um stórfellda uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í Laugardal en stuðningur við að styrkja dalinn í sessi sem miðstöð íþrótta- og frístundastarfs.