Heitasta bók ársins kom út í gær, á heitasta degi ársins. Bókin heitir Fantasíur og er tileinkuð kynfrelsi kvenna. Konum var boðið að senda fantasíur í bókina og var 51 frásögn valin til birtingar.
Hildur Sverrisdóttir, lögmaður og varaborgarfulltrúi, er ritstjóri bókarinnar og óska ég henni til hamingju með útgáfuna. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Hildur ávarpaði gesti útgáfuhófsins, sem haldið var í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar í Austurstræti.