Kjartan Magnússon bjó í Grafarvogi og hefur unnið að fjölmörgum hagsmunamálum Grafarvogsbúa í borgarstjórn. Hér eru nokkur þeirra nefnd. Nú gefst kostur á að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Kjartans.
- Kjartan hefur staðið fyrir fjölda tillagna og aðgerða um íþrótta- og æskulýðsstarf í Grafarvogi.
- Stóraukin afnot Fjölnis af Egilshöll í þágu íþróttastarfs barna og ungmenna í Grafarvogi, þ.e. knattspyrnuæfinga, skauta, fimleika, frjálsra íþrótta, taekwondo o.fl. Einnig aðstöðu fyrir frístundastarf fatlaðra barna og ungmenna.
- Aðgerðir til að bæta úr aðstöðuvanda Fjölnis fyrir inniíþróttagreinar með byggingu fimleika- og boltaíþróttahúss.
- Aðgerðir og endurbætur í þágu útivistarsvæðisins í Gufunesi fyrir alla aldurshópa.
- Tillögur um bætt umferðaröryggi, t.d. á Fjallkonuvegi og Víkurvegi.
- Tillögur um lagfæringar á opnum leiksvæðum, t.d. í Hamrahverfi og Rimahverfi.
- Sameining skóla. Kjartan stóð með Grafarvogsbúum þegar vinstri meirihluti í borgarstjórn gerði Grafarvog að tilraunahverfi vegna sameiningar fjölmargra leik- og grunnskóla, í andstöðu við foreldra í hverfinu.
- Skólalóðir. Endurbætur og lagning sparkvalla á ýmsum skólalóðum t.d. við Foldaskóla, Kelduskóla og Rimaskóla.
- Loftgæðamælingar verði efldar til að bæta vöktun á styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti frá virkjunum á Hellisheiði.