Kjartan Magnússon hefur unnið að fjölmörgum hagsmunamálum Grafarholts og Úlfarsárdals í borgarstjórn.
Hér eru nokkur þeirra nefnd. Nú gefst kostur á að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Kjartans.
- Uppbygging íþróttamannvirkja í Úlfarsárdal.
- Borgarstjórn standi við loforð um uppbyggingu í Grafarvogi- Úlfarsárdal svo hverfin verði sjálfbær varðandi margvíslega þjónustu, t.d. verslun og íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.
- Loftgæðamælistöð verði sett upp við austurenda Grafarholts- Úlfarsárdals til að bæta vöktun á styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti frá virkjunum á Hellisheiði
- Tillögur um endurbætur á skólalóðum í hverfinu, t.d. Ingunnar-, Sæmundar- og Dalskóla og úrbætur vegna gönguleiða skólabarna.
- Lagfæringar á lóð frístudaheimilisins Stjörnulands við Ingunnarskóla.
- Umferðatengingar við Grafarholt- Úlfarsárdal verði bættar með nýrri afrein af Suðurlandsvegi inn á Krókháls, ásamt nýrri tengingu frá Vesturlandsvegi inn í hverfið.
- Aðgerðir í þágu aukins umferðaröryggis við gatnamót Víkurvegar, Reynisvatnsvegar og Þúsaldar annars vegar og Þúsaldar og Vínlandsleiðar hins vegar.
- Úrbætur á leik- og íþróttaaðstöðu í Grafarholti, t.d. Leirdal.
- Skólamál: Margvíslegar tillögur og aðgerðir til eflingar menntun og skólastarfi.
- Fallið frá fjölbýlishúsabyggð við Reynisvatn í því skyni að vernda náttúru vatnsins og umhverfi þess.
- Bættar tengingar göngu og hjólreiðastíga milli Grafarholts og Úlfarsárdals.
- Tillaga um barnaleiksvæði í Reynisvatnsási.