Kjartan Magnússon hefur unnið ötullega að fjölmörgum hagsmunamálum hverfanna í borgarstjórn.
Hér eru nokkur þeirra nefnd. Nú gefst kostur á að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Kjartans.
- Tillögur um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í því skyni að auka umferðaröryggi, draga úr mengun og greiða fyrir umferð.
- Tillögur um að tryggja örugga för skólabarna og annarra óvarinna vegfarenda yfir Miklubraut.
- Margvíslegar tillögur og aðgerðir í þágu umferðaröryggis í íbúahverfum.
- Endurnýjun gervigrasvallar Þróttar og endurbætur á öðrum íþróttamannvirkjum félagsins.
- Úrbætur vegna húsnæðismála og leikfimikennslu í Vogaskóla.
- Endurbætur á skólalóðum, t.d. við Langholtsskóla og Vogaskóla.
- Skólamál: Margvíslegar tillögur og aðgerðir til eflingar menntun og skólastarfi.Bygging fimleikahúss Ármanns og endurbætur á búnaði þess.
- Viðhald og endurbætur vegna leikskóla og grunnskóla í hverfunum.
- Andstaða gegn hugmyndum um stórfellda uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í Laugardal en stuðningur við að styrkja dalinn í sessi sem miðstöð íþrótta- og frístundastarfs.