Kjartan Magnússon hefur unnið ötullega að ýmsum hagsmunamálum hverfanna í borgarstjórn.
Hér eru nokkur þeirra nefnd. Nú gefst kostur á að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Kjartans.
- Tillögur um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í því skyni að auka umferðaröryggi, draga úr mengun og greiða fyrir umferð.
- Íþróttasvæði áfram rekið í Safamýri í þágu barna og ungmenna í Háaleitishverfi.
- Endurnýjun gervigrasvallarins í Safamýri og útskipting úrgangsdekkjakurls.
- Aðstöðumál Víkings: Tillögur og aðgerðir um bætta íþróttaaðstöðu, m.a. um að staðið verði við samkomulag milli Víkings og Reykjavíkurborgar um stækkun athafnasvæðis félagsins með landspildu í Stjörnugróf.
- Viðgerðir og endurbætur á íþróttahúsi Víkings.
- Lagning gervigrasvallar í Víkinni og endurbætur.
- Viðhaldsframkvæmdir á Víkingssvæði.
- Úrbætur vegna húsnæðisvanda leikskóla, m.a. Jörfa við Hæðargarð.
- Skólamál: Margvíslegar tillögur og aðgerðir til eflingar menntun og skólastarfi.
- Tillögur um viðhald og endurbætur á húsnæði og lóðum leikskóla og grunnskóla, t.d. Álftamýrarskóla, Fossvogsskóla og Hvassaleitisskóla.
- Úrbætur í því skyni að tryggja öruggar gönguleiðir yfir Bústaðaveg í þágu skólabarna og ungmenna sem fara daglega yfir veginn vegna íþróttaæfinga.